Sesamkjúklingur

Kjúklingur með sesamfræjum6 kjúklingabringur
safi úr einu lime
1 tesk. sítrónupipar
3 matsk. sesamfræ
sesamolía
1 dós sýrður rjómi
6 tesk. dijonsinnep með kornum

Kjúklingurinn skorinn í bita og látinn marinerast í limesafanum, sítrónupiparnum og sesamfræunum. Steikt á pönnu ásamt fræunum í góðum slatta af sesamolíunni. Þegar kjúklingurinn er steiktur í gegn er sýrða rjómanum og sinnepinu blandað saman við og hitað vel.
Borið fram með góðu salati.

Ummæli