Mexíkóostasósa

Ótrúlega einföld og góð sósa sem passar vel með öllum grillmat.

1 dós sýrður rjómi
1 mexíkó ostur
1/2 rauðlaukur

Hráefnin sett saman í matvinnsluvél og maukuð þar til allt hefur blandast og sósan er samfelld. Best er að kæla sósuna vel áður en hún er borin fram. Ef sósan er of þykk má þynna hana með örlitlum rjóma eða mjólk.

Ummæli