Heimagert majones

Heimalagað majónes
1 egg
1/2 tesk. dijon sinnep
1 tesk. sítrónusafi
1/4 tesk. sjávarsalt
2 1/2 dl. bragðlítil olía

Setjið egg, sinnep, sítrónusafa og salt í matvinnsluvél eða hrærivélarskál og þeytið mjög vel. Bætið olíunni mjög hægt saman við og þeytið allan tímann.

Athugið að ef eggið er ekki þeytt nægilega vel áður en olían fer saman við þá þykknar majonesið ekki.

Ummæli