Chilli con carne

Chili con carne500 gr. hakk
2 tesk. cummin
1 tesk. chiliduft
1/2 tesk. oregano
1 tesk. sjávarsalt
1/2 tesk. svartur pipar
2 matsk. hveiti
2 hvítlauksrif
2 dósir niðursoðnir tómatar
1 dós nýrnabaunir

Steikið hakkið á pönnu, blandið saman kryddi og hveiti og hrærið því saman við hakkið ásamt söxuðum hvítlauknum. Látið krauma í 1-2 mínútur. Hellið tómötunum saman við og látið sjóða í 40-50 mínútur eða þar til sósan er þykk og jöfn. Hellið soðinu af nýrnabaununum og látið þær sjóða með síðustu 5 mínúturnar.

Ummæli

Hellen Sigurbjörg sagði…
Við vorum að prófa þennan, Fanney, og hann var svakalega góður, fer pottþétt á listann. Hafði sama meðlæti og sést á myndinni.