Rauðrófusalat með mangó

Rauðrófusalat með fræjum
Örlítið breytt útgáfa af rauðrófusalati frá Heilsubankanum

1 rauðrófa
1 mangó
2 matsk. sesamfræ
2 matsk. sólblómafræ
2 matsk. graskersfræ
2 matsk. sojasósa
1 matsk. agavesíróp
1 matsk. sítrónusafi
1 matsk. ólífuolía
1/2 tesk. sjávarsalt

Rífið rauðrófuna gróft, skerið mangóið í litla bita og setjið í skál ásamt fræjunum. Blandið saman sojasósu, sírópi, olíu og salti og hellið yfir. Hrærið salatið vel saman áður en það er borið fram.

Ummæli