Súkkulaðihorn

Pain au chocolat
Þessi uppskrift er frá Nigellu

1 pakki smjördeig
100 gr. súkkulaði
1 egg

Ef smjördeigið er ekki "ready rolled" fletjið það þá út og skerið í 6-8 ferninga sem hver er svo skorinn í tvo þríhyrninga. Setjið súkkulaðibita á hvern þríhyrning og rúllið upp í lítil horn. Setjið á plötu klædda með bökunarpappír, penslið með eggi og bakið við 220° í 15-20 mínútur.

Ummæli

Ullarvettlingar sagði…
Hæ hæ - langar að prófa þetta, nógu einfalt fyrir mig! Notarðu suðusúkkulaði eða bara eitthvað? kveðja Þórný