Klessukökur

Súkkulaðibitakökur

225 gr. púðursykur
125 gr. smjör
1 egg
180 gr. hveiti
1/2 tesk. matarsódi
310 gr. saxað súkkulaði

Öllum hráefnunum blandað í skál og hrært saman. Deiginu rúllað í lengju sem er kæld.
Lengjan skorin í 12 sneiðar sem er raðað á tvær bökunarplötur. Gætið þess að hafa gott bil á milli því kökurnar renna út. Bakað við 220° í ca. 8 mínútur.


Ummæli

Kristín Ósk sagði…
Ó mæ - get ekki beðið með að prófa þessa uppskrift!