Kúbanskar svartar baunir

Svartbaunakássa

2 dósir svartar baunir
2 matsk. olía
1 laukur
1 græn paprika
1 hvítlauksrif
2 tesk. sjávarsalt
1 tesk. svartur pipar
1/4 tesk. cumin
1/4 tesk. oregano
1 tesk. hunang
1 tesk. hvítvínsedik

Saxið lauk og papriku smátt og mýkið í olíunni í um 5 mínútur. Bætið þá baununum ásamt soðinu af þeim og mörðu hvítlauksrifinu í pottinn. Látið sjóða í um 30 mínútur eða þar til baunirnar eru orðnar hæfilega þykkar. Að lokum er kryddi, hunangi og ediki bætt við og látið sjóða í 5 mínútur. Bragðbætið með salti og pipar ef þarf. Ef baunirnar verða of þykkar má þynna þær með dálitlu vatni.

Það er gott að bera fram tortillaflögur með baununum.

Ummæli