Þeyttur ricotta ostur


Ricotta ídýfa
200 gr. ricotta ostur
1 matsk. ólífuolía
1 tesk. sjávarsalt
1 tesk. svartur pipar

Ofan á:
1/2 matsk. ólífuolía
1/2 matsk. balsamedik
Örlítill svartur pipar

Setjið ricotta ost, ólífuolíu, salt og pipar í hrærivélarskál og þeytið saman þar til osturinn er silkimjúkur. Setjið ostinn í víða skál, sléttið yfirborðið og dreypið ólífuolíu og balsamediki yfir. Stráið að lokum örlitlum svörtum pipar yfir. 

Berið fram með brauði eða kexi.

Ummæli