Kryddlögur fyrir svínakjöt

Marinering á svínakjöt
2 matsk. sojasósa
1 dl. ólífuolía
3 matsk. hvítvínsedik
4 matsk. tómatsósa
2 matsk. dijon sinnep
1 matsk. hunang 
2 hvítlauksrif, marin
1 matsk. fersk steinselja (eða 1 tesk. þurrkuð)
1 matsk. ferskt oregano (eða 1 tesk. þurrkað)
2 tesk. svartur pipar
2 tesk. sjávarsalt

600 gr. svínakjöt (hnakki eða lundir)

Öllu hráefninu í kryddlöginn er blandað saman. Hellt yfir svínakjötið og látið standa í 2 - 3 klukkustundir. 

Ummæli