Kúrenukökur

375 gr. hveiti
375 gr. sykur
250 gr. kókosmjöl
125 gr. kúrenur
250 gr. smjör
2 tesk. lyftiduft
2 egg

Hveiti, sykur, kókosmjöl, kúrenur, smjör og lyftiduft sett í hrærivélarskál og hnoðað saman. Eggjunum bætt við og hnoðað þar til deigið er samfellt.

Mótaðar litlar aflangar kökur og sett í þær far með gaffli.

Bakað við 200° í 8-10 mínútur.

Ummæli