miðvikudagur, 19. desember 2007

Mömmukökur

Mömmukökur
125 gr. sykur
250 gr. síróp
125 gr. smjör
1 egg
500 gr. hveiti
2 tesk. matarsódi
½ tesk. engifer
1 tesk. negull
1 tesk. kanell
Hitið sykur, síróp og smjör í potti. Kælið svolítið og hrærið egginu saman við. Blandið þurrefnunum út í. Hnoðið og setjið í kæli yfir nótt. Fletjið deigið fremur þunnt út og stingið út kökur. Bakið við 190° þar til kökurnar verða millibrúnar eða í uþb 5-7 mínútur.

krem:
2 bollar flórsykur
1 eggjarauða
3 matsk. smjör(mjúkt)
2 matsk. rjómi (óþeyttur)
½ tesk. vanillusykur
Þeytið flórsykur og eggjarauðu saman. Blandið smjöri, rjóma og vanillusykri saman við. Þegar kökurnar eru orðnar kaldar eru þær lagðar saman tvær og tvær með kreminu á milli.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta eru því miður ekki mömmukökur - bara piparkökur.

Nafnlaus sagði...

Ertu viss um það, ég er búinn að skoða 3 uppskriftir og allar eins nema negull og kanill er slept í einni og í hinni er kanill en ekki negull, ef þú ætlar að vera með leiðindi og "no it all" viltu þá ekki benda á hvað það er sem gerir þetta að piparkökum en ekki mömmu kökum

Nafnlaus sagði...

"know it all :)"