Tortellini með sveppum og salvíu

Pasta með sveppum og salvíu
250 gr. ostafyllt tortellini
250 gr. sveppir
100 gr. smjör
1 1/2 tesk. þurrkuð salvía
50 gr. rifinn parmesan ostur
Salt og pipar

Bræðið smjörið og hrærið salvíunni saman við. Látið standa meðan pastað og sveppirnir eru matreidd.

Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Skerið sveppina í bita og steikið á pönnu þar til þeir eru fallega brúnaðir.

Þegar pastað er soðið, blandið þá saman í skál pasta, sveppum, salvíusmjöri og parmesan osti. Bragðbætið með salti og pipar eftir smekk. 

Berið réttinn fram með meiri rifnum parmesan osti og saxaðri steinselju ef vill.

Þessi uppskrift er fyrir tvo til þrjá.

Ummæli