Toblerone mús

Toblerone súkkulaðimús
200 gr. Toblerone súkkulaði
100 gr. suðusúkkulaði
4 eggjarauður
4 dl. rjómi

Brytjið Toblerone og suðusúkkulaði og bræðið yfir vatnsbaði. Leyfið súkkulaðinu að kólna lítillega og blandið því svo saman við eggjarauðurnar.

Léttþeytið rjómann og blandið honum við súkkulaðiblönduna í litlum skömmtum.

Setjið músina í skálar eða gös og látið standa í ísskáp þar til hún hefur stífnað. 

Ummæli